Jæja.. það hefur gengið bara mjög vel að draga úr kannanabiðröðinni í sumar nú þegar þetta er skrifað. Sem stendur eru um fjórtán kannanir í bið og engin sem bíður þess að vera samþykkt.

Einnig ákvað ég að lengja tímann sem hver könnun er í gildi úr tveim dögum í þrjá og er biðlistinn af þeim sökum um 35 dagar. Ég mun ennþá halda áfram að henda út könnunum eins og “átt þú hest” og “hversu marga hesta átt þú?” og öðrum slíkum könnunum þannig að ef þið viljið senda inn kannanir þá bið ég ykkur um að reyna að vera umfram allt frumleg og að þið passið upp á stafsetninguna. Lesið yfir allt sem þið skrifið og gáið hvort að ekki sé allt með felldu. =)

Takktakk! =^.^=
=)