Mig langar að biðjast velvirðingar á þessum hægagangi síðustu tvær vikurnar eða svo. Próf og leiðindi með netið hafa verið að hrjá mig upp á síðkastið. Og örlítil leti. ;)
<p>Mig langar þó að hrósa ykkur fyrir þessa stóraukningu á innsendu efni upp á síðkastið en vil jafnframt hvetja fólk til að reyna að forðast að senda inn copy/paste greinar frá öðrum miðlum.
<p>Svo eru það blessaðar kannanirnar. Sem stendur eru eitthvað yfir 40 kannanir á biðlista. Endilega ekki senda inn kannanir sem hafa verið sendar inn eða fjalla um eitthvað sem er að gerast sem stendur þar sem þeir munu ekki koma til með að birtast í þónokkurn tíma.
=)