Sýnikennsla með Mette Mannseth verður í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi laugardagskvöldið 4. Desember n.k. kl. 1800. Mette er óþarft að kynna sérstaklega hún hefur náð frábærum árangri í bæði sýningum og keppni, með fallega og vel þjálfaða hesta. Það verður fræðandi og gaman að sjá hvernig hún þjálfar sína hesta.
Það er tilvalið nú í byrjun vetrar að rifja upp, læra nýjar aðferðir og fá hugmyndir um þjálfun á hestunum okkar. Hvetjum áhugafólk um þjálfun hesta og reiðmennsku að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara.
http://hestafrettir.is/Frettir/9483/
mbk. Böðvar Guðmundsson