Kompudagur verður haldinn í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 4.des. n.k. frá kl. 11:00 – 17:00. Nú er um að gera að losa úr skápum og geymslu fatnað, leirtau, bækur, listmuni og hvað annað sem hægt er að koma í verð. Prútta, selja eða gera góð kaup.
Panta þarf borð fyrir 1.des. n.k. – stærð 180 x 80 og leigan er kr. 2.000,- fyrir hvert borð. Greiða þarf þegar pöntun fer fram. Borðapantanir eru í síma 567-2166 og 696-8445

Brokkkórinn kemur okkur í jólagírinn með því að syngja nokkur lög.

Veitingasala á staðnum

Hlökkum til að sjá ykkur,
undirbúningsnefndin
mbk. Böðvar Guðmundsson