Yfir 130 gestir komu á hestabúgarðinn: Stalle Arnason, nálægt Köln, þar sem Styrmir Árnason ræður ríkjum. Icelandair, Félag sauðfjárbænda, Freyja og Nói - Siríus studdu þetta framtak Hestheima. Boðið var uppá ljúffengan íslenskan mat, sælgæti, brennivín og fleira gott.

Hestheimar fengu góða kynningu og mikil stemming var í risastóru tjaldinu þar sem íslensk tónlist og andi svifu yfir öllu.
Hestheimar þakka öllum stuðninginn og gestum fyrir komuna, www.hestheimar.is
mbk. Böðvar Guðmundsson