Höldum hið geysivinsæla námskeið um mat og meðhöndlun unghrossa í Holtsmúla laugardaginn 13. nóvember. Námskeiðið hefst klukkan 10:00 og lýkur klukkan 17:00. Verð er 10.000 kr á mann og er hádegisverður innifalinn. Þeir sem eru fyrstir til að skrá sig fá tækifæri til að koma með tryppi sem þá verður unnið með á námskeiðinu.
Allar nánari upplýsingar á urvalshestar@urvalshestar.is eða í síma 451 2237 og 659 2238.

Á myndinni er Hnokkasonurinn Börkur frá Holtsmúla. Á námskeiðinu verður leitast við að svara spurningum eins og:

Hvernig ætli hann sé líklegur til að líta út eftir 4 ár?
Hvernig ætli hann sé líklegur til að hreyfa sig eftir 4 ár?
Hvernig munu hans gangtegundir þróast?
Hvernig er geðslagið í honum?
Er hann fljóttaminn eða seintaminn?

Námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á hrossarækt
mbk. Böðvar Guðmundsson