Aðalfundur Meistaradeildar hestaíþróttum var haldinn í kvöld. Á fundinum var kjörinn nýr formaður og var Kristinn Skúlason kjörinn formaður Meistaradeildar í hestaíþróttum.

Á fundinum var skýrsla formanns kynnt, fundarstjóri gaf orðið laust um skýrslu formanns, ársreikningar voru kynntir og loks var ný stjórn kjörinn. Í stjórn eru Kristinn Skúlason, Maríanna Gunnarsdóttir, Margrét Tómasdóttir, Linda B. Gunnlaugsdóttir og Magnús Benediktsson og varamenn eru Rúnar Þór Guðbrandsson, Örn Karlsson og Hjörtur Bergsstað. Finnur Ingólfsson gengur úr stjórn.
mbk. Böðvar Guðmundsson