Aðalfundur Meistaradeildar í hestaíþróttum verður haldinn í kvöld, þriðjudaginn 2. nóvember að Ingólfshvoli í Ölfusi. Fundurinn hefst kl. 20:00 með hefðbundnum aðalfundarstörfum.


Allir áhugamenn og hagsmunaaðilar um Meistaradeildina eru hvattir til að mæta.

Mikill hugur er í knöpum og aðstandendum deildarinnar að efla deildina enn frekar í vetur og stefnir í hörku keppni.

Nánari upplýsingar veitir Rúnar í síma 861-4000
mbk. Böðvar Guðmundsson