Nú á dögunum opnuðu Siggi Matt og Edda Rún nýja og stórglæsilega heimasíðu. Slóðin á síðunni er ganghestar.is. Þar er að finna helstu upplýsingar um þau og starfsemi þeirra.


Síðan er skemmtilega uppsett og eru allir hlutir á henni mjög aðgengilegir. Þar eru upplýsingar um hluta af þeim söluhrossum sem þau eru með á sínum vegum, hross í þeirra eigu og þá hesta sem þau stefna með í keppni. Myndasafnið á síðunni er mjög skemmtileg en þar er að finna myndir af þeim á hinum ýmsu stundum í lífi þeirra úr keppni, sýningum og fjölskyldumyndir. Einnig eru settar reglulega inn fréttir af því sem gengur og gerist hjá þeim. Allar upplýsingar á síðunni eru bæði á íslensku og ensku.

Hestafréttir vill nota tækifærið og óska Sigga og Eddu til hamingju með stórglæsilega heimasíðu.
mbk. Böðvar Guðmundsson