Nú á næstu dögum sendum við út skýrsluhaldið í hrossarækt. Í Heimaréttinni geta skýrsluhaldarar afþakkað að fá sitt skýrsluhald sent á pappír. Margir skýrsluhaldarar eru nú þegar búnir að skrá sín folöld og því búnir með sitt árlega skýrsluhald í WorldFeng en hafa kannski ekki áttað sig á að afþakka að fá pappírinn sendan.


Í Heimaréttinni er hægt að fara í flipann „um mig“ og haka við „Ég afþakka að fá skýrsluhaldið sent (á pappír) í pósti“. Við hvetjum skilvirka skýrsluhaldara til að nota þennan möguleika.
mbk. Böðvar Guðmundsson