Stjórn LH hefur tilnefnt Huldu G. Geirsdóttur sem dómara fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem haldið verður í Austurríki 2011. Ákveðnar kröfur voru gerðar til þeirra dómara sem hugðust dæma á HM2011, þar af að hafa dæmt fimm WorldRanking mót á þessu ári og uppfyllti Hulda allar þær kröfur sem settar voru fram.
mbk. Böðvar Guðmundsson