Sunnudaginn 17. október kl 17.00 verður haldin uppskeruhátíð fyrir Léttiskrakka í Top Reiter höllinni. Þar verða afhentar viðurkenningar fyrir bestu mætingu í reiðtíma og verðlaun fyrir knapa ársins í barna- og unglingaflokki. Boðið verður uppá hamborgara fyrir Léttiskrakka, foreldrar og aðrir borga 200kr.
Á uppskeruhátíðinni verður líka keppt í prikahesti, bæði flottasti prikahesturinn og í fjórgangi. Smá hjálp um hvernig á að búa til glæsilegan prikahest finnið þið á www.lettir.is .
Notið hugmyndaraflið og húmorinn og mætið öll með heimatilbúin prikahest. Glæsilegir vinningar í boði!!!
Við viljum líka minna á reiðtygja hirðinga kvöldið, þriðjudaginn 5 okt. kl 17.30 upp í reiðhöll með Linu, fyrst verður smá fræðsla með snakki og óhollustu, svo farið yfir reiðtygin okkar fyrir veturinn. Notið tækifærið að gera þetta saman, það er heil miklu skemmtilegra!!!
mbk. Böðvar Guðmundsson