Glómoldóttur hestur Þessa mynd skannaði ég úr bók sem ég keypti mér um daginn, Íslenski hesturinn - litir og erfðir. Þið verðið að afsaka að hún er svolítið óskýr.. en mér fannst þetta bara svo flottur litur, mér hefur sjálfri aldrei svo ég viti hlotnast sá heiður að sjá svona hest þar sem þetta er svo sjaldgæft, og reyndar verð ég að viðurkenna að ég vissi ekki einu sinni að þessi litur væri til áður en ég keypti þessa bók :P Hins vegar sá ég í fyrsta sinn glóbrúnan hest fyrir um 2 árum sem mér finnst rosa flottur litur líka :D