Ljúfur og Hekla Í hittifyrra vorum við með þessa ynsislegu kisu, Heklu, í hesthúsinu hjá okkur.. Hún var ótrúlega hrædd við hestana greyjið fyrst, þorði bara rétt að kíkja fram í hesthús, annars var hún bara í hlöðunni, hnakkageymslunni eða kaffistofunni.. en svo smám saman fór hún að komast að því að hestarnir myndu ekkert bíta hana ef hún færi fram í hesthús :) Hér er hún aðeins að skoða hann Ljúf minn.. Nokkrum vikum seinna var hún farin að fara sjálf á bak Ljúf inní stíu (sem betur fer bara honum því ég er ekki viss um að það hefðu allir tekið því jafn vel) en ég var því miður ekki með myndavélina á mér þá :(