Í gær fékk ég skyndilega upphringingu um að hestarnir væru lagðir af stað til Akureyrar og komu um átta leitið í gær.

Stórmunur að sjá Strák, folinn er orðinn svo stór, og aldrei verið í eins góðum holdum, vísu örlítið þunnur en samt mikið betri en ég hef nokkurntíman tekið hann inn. Í fljótu bragði sýndist mér hann orðinn stærri en ÓÞokki, ég hélt alltaf að hann ætlaði bara að vera meðalhestur á hæð :O

Eitill er svo kominn á hús hjá Gúnda í Fák og er þar til sýnis og sölu fyrir lítið.

Mig langaði bara að segja ykkur frá því, en netsamband mitt verður samt eitthvað minna en áður þar sem tölvan heima er biluð :/

Bætt við 7. febrúar 2009 - 14:10
Skoðaði þá betur í gær, Strákur er en minni, bara svo mikið spertari en Óþokki nýkominn af kerrunni.
-