Jæja, ég er nú á 1 stigi og mig langaði að spyrja ykkur hvað þurftu þið að sýna í verklega prófinu og hvernig gekk ykkur?

Annars fór ég í fyrsta verklega tímann á miðvikudaginn með Blika og hann neitað að brokka gjörsamlega og var leiðinlegur bara þá í brokkinu.. svo í dag fór ég í annan tíma og ég tók Gust, 4 vetra hestinn minn sem er ekki mikið taminn og ég fór á honum, það gekk ekkert smaá vel, hann var ekki með nein læti inní höllinni og stóð sig ekkert smá vel.. Svo leist Söndru (kennaranum) ekkert smá vel á hann svo ég ætla að vera með hann, plús það að hann fær flotta þjálfun útúr þessu :D