jæja, loksins er komið að því að taka inn á Laugardaginn semsagt eftir 4 daga :P hlakkar ekkert smá til.. verðum í frekar töff hesthúsi:D
tökum inn Gust minn og Tinna minn.. en Spotti hesturinn hans pabba verður í haga hjá vinkonu minnar hestum einn vetur í viðbót því hann er bara 2 vetra að verða 3 í sumar :)

Annars stefnum við á það að gera Gust viljugari og örugglega gangsetja hann og hann verður 5 vetra í sumar..
Og gera Tinna hágengari og koma honum í gott form..

svo er það bara knapamerkjanámskeið sem ætti að fara að byrja.. verð reyndar með lánshest frá vin pabba í það :) hlakka þvílíkt til :D

Bætt við 15. janúar 2008 - 18:08
já Tinni verður 10 vetra í suma