Jæja, langaði að forvitnast um hverjir væri búnir að setja sín hross í haga og sumarfrí??

Ég er meðal annars búin að því gerði það föstudaginn síðasta, en hestarnir mínir hafa verið þarna áður en samt börðu hinir hestarnir þá út fyrir girðingu bara :S allavegna ég þoli ekki svona hesta sem láta svona og ég kíkti á þá áðan og ég er viss um að þeim líður illa núna til að byrja með :S reyndar er þetta alltaf svona í byrjun en þar sem ég hef miklar tilfinningar um hesta þá líður mér sjálfri ekki vel.!

Þúst þegar ég er að festa gjörðina á hestinn þá er ég hrædd um að meiða hestinn, og ef að hestarnir mínir eru eithvað niðurdregnir þá líður mér illa..

Vona að þeir jafni sig nú bara þarna sem mun væntanlega gerast ;)

Engin skítaköst