Ég var að lesa umræðu þar sem fólk var ekki visst um hvort nota mætti písk í keppnum, þar svaraði fólk að það mætti ekki í gæðingakeppni, en hvað um Íþróttamótin? Má vera með písk í ungmennaflokki þar? En í fimmgangi og gæðingaskeiði þar? Er að fara að keppa á Íþróttamóti og hef vanið mig á að vera alltaf með písk eftir að ég fór að vesenast eitthvað á trippum..

Eins þá er ég með gamlar 100% riðfríar stangir, hve gamlar þær eru er ekki alveg vitað en þær voru allavega til og notaðar fyrir 40 árum og þær eru ekki til sölu. En um daginn var mér bennt á að líklega mætti ekki nota þær í keppni þar sem mélin eru óskipt, eru bara riflað beygt járn eða hvað það efni sem notað var í stangirnar, en klárinn er vel sáttur við þær og freiðir vel á þeim, en veit einhver fyrir víst hvort það má eða ekki nota þær í keppni?
-Regza í von um góð svör..
-