Jæja semsagt þann 4.Júní 2006 fékk ég mína fyrstu tvo hesta..

Ég vissi að ég ætti að fá hest því ég valdi hann en fékk svo annan. Ég gæti ekki verið ánægðari með þá.

Gustur er með allrabesta persónuleika af hesti sem ég þekki, hann er voðalega sérstakur en ótrúlega góður og yndæll. Alltaf þegar maður kemur upp í hesthús þá gjörsmalega faðmar hann mig út í eitt og svona.. Svo þegar pabbi fer á hestbak á honum (erum rétt byrjuð að fara á bak á honum) þá er hann stundum að reyna að bíta mig :'D æji sko hann heldur stundum að hann sé fastur við mig því hann beit alltaf í gjörðina á hestinum sem hann var fastur í þegar við teymdum hann. En allavegna já hann er jarpskjóttur og allveg hreint yndislegt hross.

Tinni er hinsvegar frábær líka, frekar stífur í taumi (erum að vinna í því að láta hann hætta því) en töltir voðalega fínt. Hann hefur aldrei rokið né neitt þannig og er allveg frábært hross. Maður getur legið á honum bara útí gerði tímunum saman og honum væri alveg sama eiginlega. Hann er ótrúlega góður við mig og eltir mig stundum útí gerði og Gustur líka.

Ég gæti aldrei selt þá og mun aldrei gera það.
Og plís ef þú ætlar að koma með skítakast, slepptu því þá..
og sry ef það eru stafsetningarvillur ;)

Takk fyrir mig :P