Hvað hafið þið í hárinu eða gerið þið við hárið þegar þið farið á hestbak?

Ég er með frekar sítt hár og mér finnst mjög óþæginlegt að hafa t.d. tagl á hestbaki þar sem ég er oftast með eyrnaband líka. Ég er reyndar stundum með hárið slegið en það verður svo ógeðslegt svoleiðis bæði skítugt og flókið.
Einu sinni var ég alltaf með fléttur annað hvort eina eða tvær nennti samt aldrei að flétta hárið, fannst það asnalegt.