Nú hef ég verið að hugsa að maður þurfi að fara að fá sér aðgang að Worldfeng, þar sem maður er alveg á kafi orðið í þessu…

Nokkrar spurningar… Í fyrsta lagi er einhver hér með aðgang að Worldfeng? Ef svo er þá langar mig að vita… hvað kostar þetta? Er það ekki eitthvað gjald á ári bara? Er þetta þess virði?

Svo langar mig líka að vita hvort þið gætuð, ef þið eruð með aðgang, fundið fyrir mig Dimmu frá Móðeiðarhvoli, undan Safír frá Viðvík… mig vantar IP númer hennar, ég er að fara að keppa á henni…

Fyrirfram þakkir :)
Með kveðju frá hestafríkinni…