Jæja…Nú eru tveir dagar síðan ég sendi inn grein og hún hefur enn ekki verið samþykkt…
Er alls ekki að kvarta undan stjórnendum, þeir eru að standa sig vel, svo lengi sem þeir kíkja hérna inn á ;)
Finnst svolítið lélegt að vera stjórnandi á svona lítið virku áhugamáli og finnast þá allt í lagi að kíkja ekki í nokkra daga, því það er hvort eð er ekkert að gerast…=) (er ekkert að segja að það sé ástæðan, segi bara svona)

Stjórnendur…Er ekki allt í lagi að kíkja allavega svona 10 min á dag, til að samþykkja greinar og kannanir? =)

Þetta er allt sagt með góðu, án neinnar illrar merkingu til stjórnenda….;)