Úff rétt áðan var annars dauðþægi folinn minn hann Strákur að taka uppá því að stinga sér, reyndar ekki alveg í fyrsta sinn sem hann gerir þetta en ég sat hann og hann er það mjúkur að allt sem gerðist er að ég missi ístöðin og hnakkurinn ýttist aðeins fram, en ég náði þeim fljótlega aftur þegar mér tókst að hægja hann niður, nema annað ístaðið skall í vinstri öklann á mér og ýtir þar með aðeins við nagla sem var settur þarna við broti fyrir 4-5 árum eða meira, man ekki alveg.

Allavega þá er ég draghölt eftir þetta, vona samt að þetta lagist fljótlega verð að geta unnið á morgun..

En vinkona mín kom svo og áhvað að taka myndir svo bráðum mun ég líklega senda inn myndir af fyrstu töltsporunum, en á fettölti samt en þar er hnakkurinn samt allt of framalega og ásetan ekki sú besta sem gerist þar sem ég var að reyna að hlífa löppinni, þar fyrir utan náðust ágætis myndir, dýrkeyptar af sársaukanum samt…

Bætt við 22. apríl 2007 - 16:46
Það er einmitt Strákur sem er á auglýsingunni hérna til hliðar!
-