Ég veit að þið eruð öll búin að heyra þetta, og ég veit ekki hvort að það hafi verið einhver umræða um þetta þegar að þetta varð fyrst ljóst. Svo ekkert skítkast:)
En já Siggi frændi og Lísbeth eru búin að selja Holtsmúla, þegar að mér var sagt þetta þá brá manni aðeins.
Þessi staður er það besta alltaf í jólamatarboðunum og svona:P en mér finnst eitt fúlt fyrir þau það er að missa Holtsmúla nafnið. þetta er svo rosa stórt nafn og flesti þekkja þetta hvar sem er í heiminum (sem að tengjast þá hestamennsku)En þetta er nottla mikil uppfæring að fara á nýjann stað þó að hann sé bara hinum meginn við götuna.
Komin með svaka aðstæðu risahesthús og reiðskemmu nokkur íbúðarhús og ég veit ekki hvað og hvað. Allt í Holtsmúla var og er komið til ára sinna. get ekki sagt annað nema það að manni hlakki til að sjá þetta hjá þeim. Og þið munið ekkert skítkast:)
Danir eru ekkert annað nema stoned svíar á sandölum