Ætla af herma eftir ‘gutinn’ ;)

Jæja, hesturinn minn heitir Laufi og er 8 vetra. Hann er bleikálóttur, tvístjörnóttur með hófkringlu.

Hann var mjög ungur þegar ég fór fyrst að nota hann, örugglega bara því að var svo stutt í tamningu.. :D góðir svona hestar sem þurfa bara tveggja mánaðar tamningu og svo eru þeir bara til !

En annars þá er þetta besti hesturinn minn og ég gæti treyst honum með líf mitt ! algjörlega og ég vona bara að ég fái fleiri svona góða hesta eins og hann.