Jæja þá á ÓÞokki minn að koma hingað til Ólafsvíkur í dag, reyndar annað hvort járnalaus eða búinn að missa eitthvað undan sér, eftir því hvort það hafi verið dregið undan honum eins og ég bað um.. En það hlýtur að finnast járning hérna einhverstaðar..

Allavega þá er klárinn loksinns að koma hingað nær og ég er að reyna að semja um að fá meri með honum sem ég var með í þjálfun í sumar, vandræðapakka sem þarf mikla athyggli en er skemmtilegt verkefni, gæti orðið að góðu hrossi með réttri þjálfun ;)

Annars þá ætla ég að reyna að fá að nota hesthús sem stendur tómt fram að áramótum þar sem allt í einu hef ég allann þann tíma sem ég vil til að sinna hestunum eða næstum því, same thing.. Ég verð að beita eitthvað smá en þar er nokkuð frjáls vinnutími ;)
-