Mig langaði bara til að láta ykkur vita að það er víst þvílík rýmingarútsala í hestarvörubúðinni Hestar og menn sem er á móti gömlu MR búðinni sem heitir núna Lífland. Rosaleg tilboðsverð, meðal annars skór á 50% afslætti og mér skildist á þeim að nánast allt ætti að seljast.
Bara láta ykkur vita svona fyrst ég kemst ekki, er víst föst hérna fyrir vestan.

Bætt við 26. september 2006 - 12:36
Nánari upplýsingar =Þ C/P reyndar en..

“ÚTSALA HJÁ HESTAR OG MENN Í dag þri. 26. sept. hefst risa útsala hjá versluninni Hestar og Menn og mun hún standa yfir í tvær vikur. Í boði verða vörur með 15 til 90% afslætti og má þar meðal annars nefna Top Reiter ábreiður á 1990, Flíspeysur frá Top Reiter á 1990 og vídeospólur á 149 krónur og valdar reiðbuxur á 50% afslætti. Veittur er 15% afsláttur af öllum vörum okkar nema á fóðurvörum, skeifum og spæni. Verið velkomin á risa útsölu okkar að Lynghálsi 4.”
-