Langaði bara að forvitnast um það hvort einhver hefði farið á sýninguna, sá að það voru tveir sem voru búnir að skrá sig í “atburðir” fyrir utan mig.. En ef einhver fór, hvernig var? Eitthvað varið í þetta? :)

Ég var búin að hlakka mjög til að fara, lagði af stað í gær og var rétt komin út úr bænum þegar það kom eitthvað viðvörunarljós í bílnum þannig ég þorði ekki að keyra svona langt og sneri við :( Svo var ég að hringja í verkstæði núna og kallinn sagði mér bara að keyra áfram fram á miðvikudag og sjá hvort ljósið færi ekki bara, ég náttúrulega veit ekki mikið um bíla þannig ég tek hann bara á orðinu, sem þýðir að ég hefði líklega alveg getað farið í gær.. Ótrúlega leiðinlegt :'(