Um daginn fór ég á bak með pabba og það var rosalega gaman……

en svo fór hesturinn minn að vera afskaplega slakur eins og hann væri þreyttur sem er mjög undarlegt því hann Blesi er ALLTAF viljugur, það er næstum sama hversu þreyttur hann verður, hann er alltaf viljugur……

en málið er það að pabbi sagði að þetta gæti verið múkk….. en ég hef bara ekki hugmynd um hvað það er enda hef ég enga reynslu af múkki í hestunum mínum…….

Svo ég var að pæla hvort þið gætuð kannski sagt mér aðeins frá múkki?????
Með kveðju frá hestafríkinni…