Langaði bara að ath. hvort einhver lumaði ekki á myndum sem ég mætti fá hjá ykkur eða gætuð bent mér á síður þar sem hægt er að fá þær í góðri upplausn.
Ég er búinn að leita slatta á netinu, veit reyndar ekkert hvar ég á að leita en það sem ég finn er alltaf í svo lágri upplausn að ég get ekki notað þær.
Myndin þarf að vera af íslenskum hesti(Orri frá Þúfu væri mjög gott), sjást á hliðina á honum þegar hann er að hlaupa með þrjár fætur á jörðinni, að það sjáist vel í vöðva og hún sé í góðum fókus. Helst knapa laus því það á að skera út eftir þessari mynd.
Vonandi á eða veit einhver um eitthvað í líkingu við þetta.
Takk