Grunaður um að níðast á hrossum
Lögreglan á Selfossi handtók skömmu eftir miðnætti í nótt mann í Þorlákshöfn eftir að sést hafði til hans koma út frá hesthúsi í hesthúsabyggðinni þar í bæ. Grunsemdir voru uppi um að maðurinn hefði verið að fá kynferðislega útrás á skepnum í húsinu.

Lögreglan segir, að maðurinn hafi verið færður í fangageymslu og sé málið í rannsókn. Verði dýralæknir m.a. fenginn til að kanna hvort átt hafi verið við hrossin og þá hvort þau hafi orðið fyrir skaða.(tekið af mbl.is)


ojjj spáið í fólki sem gerir svona!!!:@