AÐ vísu er það rétt að hann Hafliði sé algjör KJÚTLINGUR….thíhí, en Sær er heimsmeistari á öllum þeim mælikvarða sem menn dæma um, þið ættuð að sjá hann þegar eigandinn hann Ársæll Jónsson fer á bak, þá er Sær engum líkur, enda er ég alltaf að segja við Ársæl að hann eigi að keppa sjálfur en ekki leifa þessum vindhana að ráða ferðinni. Ég held að Hafliði og Sæ komi ekki nógu vel saman, ég þekki Sæ ábyggilega mun betur en hann, enda hefur hann Sær aldrei hunsað mig…þvílíkur hestur, ég vildi að þig þekktuð hann jafn vel og ég og séð hann á sömu augnablikum og ég…þá munduð þig skilja að hann er réttmætur LM meistari!