ég verð nú að játa það að því miður á ég ekki neinn hest ;( en eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að fara á hestbak og í gær bauð frændi minn mér á hestbak og auðvitað þáði ég það með þökkum. Ég var látin hafa rauða meri sem heitir Dama. En einnig verð ég að játa það að þó að ég geti nú alveg lagt á og setið hest og allt það að þá er ég frekar légleg í því að láta hesta skipta um gang og solleis en svo var ég á henni Dömu og vorum komin svoldið áleiðis að þá lítur frændi minn á merina og segir “já, helvti brokkar hún vel, hjá þér” og svo sagði hann mér að það væri frekar mjög erfitt að fá hana til að brokka því að hún tölti eða skeiðaði oftast, en svo náði ég henni líka á hratt brokk og tölt :D
ég var frekar ánægð með sjálfa mig þó að ég segi sjálf frá ;Þ
og svo bauð frændi minn mér aftur á bak á Laugard. ég get ekki beðið!!!!!!!!!!!!! :D :D :D :D :D :D :D
Everyone believes in destiny… some just don't know it yet