Óska eftir hrossi á verðbilinu 50-150 þús. Þarf að vera þægilegur reiðhestur sem getur hentað byrjendum jafnt sem lengra komnum. Ekkert verra ef hann er smávaxinn og aldur er ekkert atriði (innan marka). Þarf einnig að vera með þægilegt tölt. Útlit skiptir ekki öllu máli, má reyndar vera alveg hrikalega ljótur. Aðal málið er að hann sé þægilegur í umgengni og vanti einhvern til þess að hugsa vel um sig. Vinsamlega sendið póst á budgie@islandia.is með upplýsingum um verð og ástand og ekki skemmir fyrir ef að mynd gæti fylgt.