Í gær var ég á hestbaki með systir minni og við fórum kirkjugarðshringin ( kópavogi) og allir mjög kurteisir eins og vanalega :)
Svo svo var ég bara á feti á nýja hestinum mínum sem ég treysti ekki 100& og systir mín á merini sinni og teymir annan með…. Svo bara erum við eiginlega á mót Nettó kemur 1 strákur á móti okkur ( í fjólublárri úlpu) og ég auðvita vinstramegin á stígnum (við grasið) því ég hef eiginlega ekkert jafnvægi á hestinum mínum eftir að mér var kastað oft og illa í fyrra og er bara ný farin að þora aftur á bak !

Svo kemur þessi strákur(ætti nú bara að kalla þetta fífl ! ) á móti mér og dettur ekki í hug að færa sig aðeins til hægri ( við vorum nú bara 3 þarna á stígnum)..
það munaði svo littlu að það hefði bara orðið “árekstur” þarna en ég færði mig auðvita !!! ég hef aldrei áður orðið svona hneiksluð á frekju í annari manneskju !!!
Svo höldum við bara áfram og hittum þá annan sem var vitlausu megin (eins og ég var) og AUÐVITA færum við okkur fyrir hann !og viti menn! það var ekki erfit !!!!
En þetta var góð ferð fyrir utan þennan freka krakka :) alltaf gaman að hitta brosmilda Gustara

Kveðja
ANNA sem er enþá hneiksluð !
<br><br>Eldeyjar
********