í fyrra haust kynntumst ég og pabbi minn mjög góðu fólki sem er með hesthús upp í Fjárborg.Svo þegar við pabbi vorum búinn að kynnast þeim betur þá sögðu þau að þau væru með 4 vetra meri upp í Borgarfirði sem þau héldu að myndi einmitt passa fyrir mig.Svo kíktum við á hana og leist mjög vel á hana og síðan keypum við hana
og heitir hún Stelpa.Núna er hún í tamningu hjá fólkinu sem seldi okkur hana og þau heitia Jens Pétur Högnason og konan hans Friðbjörg.Síðan förum við alltaf til hennar og förum með hana að labba og látum hana hlaupa í gerði. En það sem kom okkur mest á óvart er að hún er gæfasti og flottasti hesturinn í húsinu og bráðum verð ég kominn á bak og hlakka mjög mikið til að sjá hvernig henni gengur með allt.

kveðja eva66 og Stelpa