Ég skrifaði sko korkinn hérna fyrir neðan…

En Galdur er orðinn verri !!!

Þetta hefur hann aldrei gert áður: Ég var í reiðtúr og hann spenntist þvílíkt upp bara við að að fara framhjá öðrum hestum, svo var einhver hestur rétt hjá okkur að gera einhverjar æfingar og ég var heillengi í “slag” við Galdur… Svo endaði þetta með því að ég lenti á slysó :( Munaði engu að ég fótbrotnaði. Hann stökk með við niður frekar bratta brekku og ég datt ú ístöðunum…

En núna tók ég reyndar eftir öðru með hann, ef ég ætla að hægja aðeins ferðina með því að toga í tauminn þá fer hann bara hærra og hærra með hausinn og á endanum, þegar hann kemst ekki hærra, þá byrjar hann að prjóna :/

Ég er svona eiginlega að spá í að nota ekki eins viljugan hest næst ;) Hann er náttla frekar ungur (6 vetra) og ungir hestar eru oft mjög viljugir…<br><br>
=================================================


Lífið er eins og dauðinn… bara styttra…