Ég er nýbyrjuð að nota nýja krúttið mitt, hann Galdur, og er búin að komast að því að hann er alveg ROSALEGA fælinn, hvert einasta smáhljóð og hann hrekkur í kút.
Ég var í reiðtúr í gær sem endaði með því að ég þurfti að henda mér af baki út af því að hann fældist svo rosalega og var farinn að prjóna og prjóna og hljóp svo heim :/

Vitiði um einhverja leið (sem virkar) til að laga hann aðeins á taugum?
Þetta er frábær hestur, bara að hann væri ekki svo fælinn :(

Það er soldið leiðinlegt að geta bara farið ákveðnar leiðir, hann hræðist OF mikið…

takk takk… Grímsla<br><br>
=================================================


Lífið er eins og dauðinn… bara styttra…