Til hamingju Hestar&Menn Þann 4/10 síðastliðinn opnaði verslunin og nú einnig vefverslunin Hestar og menn sína fyrstu heimasíðu.
Ég og eflaust fleiri hestamenn höfum lengi beðið eftir þessari síðu og nú lokssins er hún komin.
Þessi síða hefur upp á margt að bjóða, t.d. Vefverslun, kynningar á vörum og fl. Þessi síða er alveg glæsileg en er þó ansi lík vefverslun Töltheima heitinna.
Það eru margir vöruflokkar á síðunni og svo vill ég minna ykkur á að nú er hægt að fá videomyndina frá LM 2002 á Vindheimamelum sem var alveg frábær upplifun (ég fór) og ég hvet alla til að láta sjá sig á LM 2004 á Gaddstaðaflötum. Það er sko pottþétt að ég mæti og verð alla dagana.
Að lokum vill ég bara óska Geira og hans fjölskyldu til hamingju með síðuna og frábæra búð og megi hún lengi standa.

Takk fyrir.