Greinasamkeppnin, frestur til að senda inn til mánaðarmóta! Munið að það eru stig í verðlaun! Sælir allir, við Paniolo höfum áhveðið að setja fram greinasamkeppni. Efnið verður hvar þið standið í hestamennskunni, skiptir engu hvort þið séuð atvinnumenn eða byrendur, segiði frá því sem þið gerið dagsdaglega í hestamennskunni og hverjar vonir ykkar eru um framtíðina, ætliði á hóla, ætliði að rúlla upp keppnisvellinum, eða ætliði bara að ferðast um landið á hestum, hvað sem er, sky is the limit! =)

Í fyrstu verðlaun eru heil 50 stig.
Önnur verðlaun eru 25 stig
og í þriðju verðlaun eru 10 stig.

Ef greinarnar verða nógu margar verður kosið tvisvar, fyrst um allar svo bara þær efstu ca 30-50% greinanna fara þá í úrslita könnunina.

Koma svo allir að skrifa um sína hestamennsku og framtíðina!

Sett verður upp könnun um mánaðarmótin þar sem fólk getur kosið um bestu greinina, bið fólk að vera hreinskilið í vali og muna að það er svolítið svindl að kjósa sína eigin grein =)
Kveðja stjórnendurnir á /hestum, Regza og Paniolo.
-