Jæja við erum búnar að setja saman spurningalista.
Hann mun væntanlega líta svona út nema okkur dettur eitthvað fleira í hug á næstunni eða ef þið viljið breyta einhverju eða bæta við.
Síðasti séns fólk til að tjá sig um þetta ;-)

Já og hverjir vilja vera hestahugarar ? Endilega sendið okkur skilaboð þess efnis. Eða ef þið viljið stinga upp á einhverjum.

Viljiði hafa þetta vikulega, hálfsmánaðar eða hvað ?

1. Huganafn
2. Aldur:
3. Atvinna:
4. Hestamannafélag:
5. Borðar þú hrossakjöt?
6. Á hvaða aldri varstu þegar þú byrjaðir í hestamennskunni?
7. Af hverju ertu í hestamennsku?
8. Áttu hest ?
9. Hver er besti hestur sem þú hefur átt?
10. Hvar er hesturinn(hestarnir) þinn yfir árið ?
11. Átt þú önnur gæludýr (Ef svo er hver )?
12. Hver er besti stóðhestur á landinu að þínu mati?
13. Finnst þér að fækka mætti hrossum á landinu?
14. Hvert er fegursta hross sem þú hefur augum litið?
15. Hvert er besta hross sem þú hefur setið
16. Uppáhaldsknapinn?
17. Hver er besti árangur þinn í keppni?
18. Lýstu bestu stund þinni á baki hests?
19. Hver er undirstaðan að góðri reiðmennsku?
20. Hvað finnst þér um þetta áhugamál?
21. Helsta framtíðartakmarkið?
22. Eitthvað að lokum?

Kv. catgirl