Jæja eins og þið flest vitið þá kom tigris88 með þá hugmynd að hafa hestahugara vikunnar og okkur Zaluki líst bara vel á hugmyndina.

Það væri vel þegið ef þið mynduð posta inn hérna fyrir neðan þær spurningar sem þið mynduð vilja fá svör við frá hestahugurunum. Eitthvað sem ykkur finnst áhugavert og koma málinu við. Þá getum við Zaluki notað þær til að búa til góðan spurningalista og reyna að svala forvitni ykkar.

Ef þið viljið vera hestahugari vikunnar eða mæla með einhverjum endilega sendið okkur skilaboð þess efnis eða postið hérna fyrir neðan ;-)

Kveðja,
Kisustelpan