Ég var að spá hvort þið ættuð heima í sveit eins og ég eða ættuð heima í hverfi eða borg og hefðuð hesta í sveitinni hjá einhverjum sem þið þekkið.

Auk þess erum við með heima 50 hesta en við eigum aðeins 35 af þeim.
Reyndar er líka þríbíli hjá okkur svo náttúrulega er mikið af hestum heima hjá mér.

En auðvitað gleymdi ég að spyrja áðan hvort þið ættuð heima í hverfi eða borg og hafið hestana ykkar í hesthúsi þar.

Ég veit reyndar að Hulda hefur hesta upp í Borgarfirði en ég held að hún eigi samt heima í Reykjavík.

Þetta er nú bara smá forvitni í mér, en reyndar finnst mér spennandi að segja ykkur hvar ég á heima.
Ég á heima í sveit sem er í Grímsnesi og heitir Miðengi.
Hún er beint á móti Kerinu