Litur íslenska hestins er svo flottur.
Eins og hjá myndunum hjá catgirl sér maður hvað hann er mikið mislitur á litinn.

Eins og um daginn fórum ég, pabbi, mamma og tveir frændur mínir að ná í nýja folann minn hann Guffa, þá keyrðum við framhjá nokkrum stóðum og í nokkrum þeirra var enginn með sama litinn.
Einn var skjóttur hinn var vindóttur og hinn jarpur og svona get ég alveg haldið endalaust áfram.

Reyndar keyrðum við hjá öðru stóði og þar varflest allt brúnt en skiptir engu, allir íslenskir hestar eru fallegir.

Svo eru litir þeirra margra svo skrítnir, eins og ég sá hest um daginn sem var með fjóra liti í sér.
Hann var jarpskjóttur með rauðan lit aftan í sér og hafði síðan brúna stjörnu á hausnum sínum.

Mér finnst íslenski hesturinn lang flottastur!!!!!!!!