Búið er að dagsetja Ístölt Töltheima í Skautahöllinni.
Veislan verður haldin laugardaginn 6. apríl og verður keppnin með svipuðu sniði og undanfarin ár, þó með smávægilegum breytingum sem ekki verða kynntar fyrr en síðar.

Val á hestum og knöpum verður áfram í höndum Erlings Sigurðssonar og að venju er hann með njósnara á sínum snærum um allt land, þannig að þeir sem eru eitthvað að spekúlera í að komast á svellið ættu að vanda sig í hverjum reiðtúr í vetur. :)
“The more people I meet the more I like my cat.”