Þetta er alveg frábært, þetta áhugamál er að vakna upp frá dauðum!
Eins og þið sjáið líka hafa tigris88 og catgirl verið að senda inn heilan helling af myndum og greinum.

En, auk þess eru þær catgirl og Zaluki að vinna frábæra vinnu sem adminar og vonandi halda þær þessu ennþá, (Þið eruð geðveikir adminar!)

En áður en ég segi eitthvað meira vil ég endilega benda ykkur á greinina sem er á korkinum, Hestur til sölu!!!.
Ég þarf nefnilega að selja hann, reyndar ekki ég heldur frændi minn en hann kann ekkert á tölvur, en hann fann engan sem gat keypt hann og ég sagði honum frá ykkur, því ég treysti því að þið verðið góð við hestinn.

Hann er mósóttur með blésu, hann er 8.vetra gamall og mér finnst hann svo flottur á litinn. Verðið á honum er 120 þúsund.

Jæja þetta var nú ekki allt sem ég ætlaði að segja en reyndar, þarf maður að fara að hætta.
Ég var líka að hrósa adminunum og höldum áfram að senda inn myndir og greinar!!!!!