Núna, þegar er búið að rífa þetta áhugamál upp, vona ég að við hér föllum ekki í sömu gryfju og svo margir aðrir. Á flestum áhugamálum hér á huga er fólk einatt að rífast í öllum. Ég tók eftir því hérna áðan við greinina “Hræðileg lífreynsla hests :(” að Achondar lýsti frati á það sem var verið að tala um í greininni. Það að fólk sýni svona viðhorf hérna gerir skaða, fær fólk til að hætta að vilja vera hérna. Það aftur á móti gæti leitt til þess að áhugamálið lognaðist út af, aftur. Getum við ekki reynt að koma einhvernvegin í veg fyrir að svona fólk sem virðist nærast á því að egna aðra upp á móti sér, hangi hérna inni á hestum?