Jæja þetta áhugamál. Það er alveg að drepast og síðan eru menn farnir að rífast.

Reynum nú að koma þessu áhugamáli í gott stand, sendum inn góðar myndir og mjög góðar greinar.
Eins og margir sjá er fólk að leita að hestum sem eru til sölu, af hverju væri ekki hægt að gera eitt. Búa til kubb sem heitir hestasala og þar væri hægt að fá og sjá allar upplýsingar um hestana sem eru til sölu.

Þetta með kubbinn er nú bara smá hugmynd en mér finnst að við ættum að rífa þetta upp.
Við erum með frábæra admina og ætti þetta ekki að vera neitt vandamál.

Ekki vill maður sjá þetta áhugamál detta niður eins og mörg önnur hérna inn á huga eru að gera.
Svo verum dugleg að senda inn greinar og myndir og sprengjum áhugamálið.