Jæja þeir sem ákváðu að kíkja á þessa grein.. takk fyrir það ;-) Og verið öll hjartanlega velkomin hingað inn :-)

Ég vildi bara tilkynna að það eru komnir 2 nýjir umsjónarmenn á þetta áhugamál (ég & hún Zaluki). Við vorum komnar með leið á því að ekkert væri að gerast hérna og að þeim sem kíkja hingað inn fer sífækkandi. Svo við ákváðum að gera eitthvað í þessu og taka þennan munaðarleysinga að okkur :-)

Við ætlum okkur aldeilis að hrista upp í þessu áhugamáli og þið sem voruð að gefast upp á að koma hingað eða jafnvel hætt.. endurskoðiði það !! og þið sem eruð að kíkja í fyrsta sinn endilega komið aftur ;-)

Við gerum okkur grein fyrir að það er lægð í þessu áhugamáli í augnablikinu, kannski líka því enginn er að sinna þessu að ráði núna en þegar fólk fer að taka inn hestana sína nú um áramótin þá vonumst við til að fólk fari að sinna þessu áhugamáli betur. Og að einhverjir taki við sér við þessum nýju greinum hérna :-)

Við erum fá hérna og þó fámennt sé góðmennt þá geta alltaf fleiri bæst í hópinn og allir eru velkomnir.

Við erum búnar að hafa samband við nokkur hestafélög og vonumst til að þau verði dugleg að láta okkur vita af öllu því sem er að gerast svo við getum alltaf verið með nýjustu fréttir.

Við höfum í hyggju að betrumbæta þetta áhugamál, bæta við kubbum og svo framvegis en þetta er allt á frumstigi hjá okkur þar sem við vorum bara rétt að taka við þessu. Ef það er eitthvað sem ykkur finnst vanta þá endilega talið við okkur. Allar ábendingar eru vel þegnar (og við bítum ekki ;-)

Kær kveðja
Kisustelpan